Helena - TCU

Senior year!

24.01.2011 04:58:42 / Helena

Smá update..

Alltof langt síðan síðast.. sorry! 
Búið að vera eitthvað svo mikið að gera, og þegar conference er byrjað þá er mikið um ferðalög og leikir 3ja eða 4ja hvern dag..
En útskriftin gekk fínt, mamma var hjá mér um jólin og það var rosalega gaman að hafa hana hjá mér að upplifa þessa hluti:) Vorum í Austin um jólin hjá ömmu og afa hennar micuh, þau voru æðisleg sem og fjölskyldan hennar öll og okkur leið bara mjög vel..

Núna erum við semsagt næstum búnar með fyrri umferðina í conference, 2 leikir á móti 2 neðstu liðunum eftir.. Við erum taplausar so far og erum búnar að vinna á 3 mjög erfiðum útivöllum sem er alltaf gott. Erum ekki ennþá búnar að eiga mjög góðan leik en erum samt að klára og vinna leikina sem skiptir öllu, erum alltaf að verða betri og betri sem lið og það er mikilvægt!

í Mars kemur svo hálf fjölskyldan til að vera hérna heima fyrir senior night og svo ferðast til Las Vegas og sjá conference tournament. Alltaf svo gott og gaman að hafa fjölskylduna:)

Masters-námið gengur ágætlega, mjög erfitt að motivera sig til að gera eitthvað, þegar ég veit að þetta er nánast til einskis. Þarf að vera í skóla til þess að klára tímabilið en svo er planið mitt að halda áfram og komast í næstu plön og ekki klára masterinn strax allavega. Manni finnst þetta því frekar useless en svona eru þessar reglur hér í NCAA..

Annars er bara allt frábært að frétta héðan. Líður alltaf jafn vel hér og komin smá kvíði og fiðringur þegar maður hugsar til þess að það er alltaf að styttast í að þetta college ævintýri sé að klárast..

þangað til næst, take care!

» 20 hafa sagt sína skoðun

07.12.2010 16:21:34 / Helena

11 dagar í útskrift!!!

Vá hvað þetta líður hratt!!!
er að fara að útskrifast eftir 11 daga!!! hlakka svo til!! vildi að maður gæti haldið almennilegt útskriftarboð en það verður bara að bíða þangað til ég er komin heim I guess....

annars er allt ágætt að frétta, karfan verið alveg upp og niður! erum 4-4 núna, búnar að tapa ALLTOF mörgum leikjum, alveg fáránlegt þar sem við erum ekki að spila illa, erum bara ekki að ná að klára leiki.... mjög fúlt en vonandi förum við að laga það!!

Virgin Islands var rosalega gaman fyrir utan 3 tapleiki, en þetta var mjög sérstakur staður. Vorum á eyjunni St. Thomas þar sem allt var rándýrt! dýrara en Ísland!! haha, hamborgaramáltíð á 18 dollara, á semi hótel barnum.. snakkerý og nammi á alltof mikið! Micah keypti sér snakkpoka á 10 dollara!! haha crazy!! hún fékk áfall þegar hún skoðaði kvittunina...

Síðan síðast er margt búið að gerast obviously, pabbi kom í heimsókn snemma í nóvember og það var alveg frábært. Mamma kemur svo núna á föstudaginn og verður hjá mér fram yfir jólin enda þýðir ekkert að skilja litlu stelpuna sína eftir eina í "útlöndum" yfir jólin! haha

Er með eitthvað skrýtið contusion i hendinni, fæ svona random kippi í þumalinn! haha, voða furðulegt en Valerie reddar því eins og öðru :)

er núna í seinasta skóladagnum! finnst það ekkert leiðinlegt!!

Take care!! 

» 20 hafa sagt sína skoðun

29.10.2010 03:21:45 / Helena

Styttist

LOKSINS er maður farin að sjá að tímabilið er rétt handan við hornið..
Fyrsti leikurinn okkar er hér heima gegn Houston Baptist 12 nóvember, síðan eftir það fer allt á fullt og við spilum 3 leiki áður en við förum til VIRGIN ISLANDS og spilum 3 leiki þar.... (það er í lagi að vera afbrýðisamur)

Undanfarnir dagar hafa verið frekar strembnir, enda erum við inní gym-i í um 3-4 klst á dag, bætir við 1 klst f treatment og svo 30 mín f auka-skot... þannig ég hef ekki mikið annað gert en gera heimaverkefni og æfa..
Fyrsti æfingaleikurinn er núna á sunnudaginn gegn Lamar sem er þjálfað af Coach Tidwell sem var hér í TCU og var sá sem recruite-aði mig og okkur senior-ana..

Styttist í að pabbi komi í heimsókn, og hann fær að sjá 2 leiki.. Síðan kemur mamma í desember og sér nokkra leiki líka. Alltaf svo gaman að fá þau í heimsókn!!
og að hafa þau að horfa á leiki líka... Hef ekki séð þau síðan í júní þannig þetta er orðin svoldið langt síðan ég sá þau síðast..

jæja er að skrifa ritgerð um hvítu-menninguna hér í US! 

Take care!

» 18 hafa sagt sína skoðun

07.10.2010 04:41:50 / Helena

Journey of a lifetime

er ofurspennt fyrir tímabilinu að byrja.. Get ekki beðið eftir að komast í búning og útá gólf... 
Æfingarnar eru "officially" byrjaðar sem þýðir að eftir að mega bara vera 2klst á gólfinu með þjálfurum í september, við megum eyða 20klst á viku með þeim.. Ekki talið með lyftingar og þrek en styrktarþjálfarinn okkkar sér um það..
September gekk annars mjög fínt, maður byrjar að shifta yfir í einbeitingu að eingöngu körfunni og skólanum og þar sem ég er á minni síðustu önn og "bara" í 3 áföngum þá á karfan minn hug og einbeitingu (what's new?) Þá daga sem ég fer ekki í skólann fer ég í gym-ið f skotæfingar.. Markmiðið er að hitta 200 þristum áður en ég hitti 50 víti.... Finn að skotið er orðið mun öruggara en það hefur verið og ég finn það vel á æfingunum að skotið er til staðar... Þegar skotið er í lagi þá get ég ekki verið annað en sátt, þannig ég ætla að halda mér á þessu plani..
Harðsperrurnar alveg verið til staðar og aðeins fleiri marblettir og aumleiki en undanfarin ár, enda erum við loksins komnar með "alvöru" scout lið eða semsagt strákar sem koma á æfingarnar og spila gegn okkur... Fullt af nýjum andlitum í ár og eru þeir allir jafn háir eða hávaxnari en ég (184cm) og margir mjög sterkir.. það er frábært að fá að æfa með strákum á hverjum degi, enda þarf maður allt í einu að spila mun harðar og fastar, hlaupa hraðar og hoppa hærra til að vera successful..

Annars þjáðist ég af senior-itis eða það vildi academic advisorinn minn allavega kalla þetta... Ég var ekki að finna mikla mótiveringu til að læra, en eftir smá slugs þá tók ég mig saman í andlitinu, enda getur maður ekki kvartað yfir þessu, er nú bara í 3 tímum, frí mán, mið og fös, og ég útskrifast með BS gráðu eftir 2 mánuði!

Er akkurat núna stödd hjá vinafólki þjálfara minns og er að passa. Fannst ekki leiðinlegt að eyða fyrri hlutanum af deginum með 16 mánaða gömlu krútti sem bablaði í 2 tíma, skreppa svo í film og á æfingu og koma svo aftur og fá að svæfa krýlið og "leika" við stóra bróðir, 5 ára Sullivan sem er algjör snillingur. Hann kenndi mér spænsku (en hann er í spænsku-talandi skóla til að kynnast/læra tungumálið strax) og svo fórum við í skólaleik þar sem PE eða íþróttir var aðal tíminn og fékk ég að kynnast alls kyns mismunandi armbeygjum og var Sulli annað hvort gargandi á mig á spænsku eða hrósa mér... Krútt..
baðaði svo krýlið og lærði ennþá meira frá honum, t.d. hvernig hægt er að verjast tannpínu..

Núna eftir helgi er síðan fall break. Við æfum snemma á föstudagsmorgun svo við höfum alla helgina eða framá hádegi á þri til að taka frí.. Eftir þessa helgi fær bball fólk ekki frí fyrr en í apríl, þannig það er eiginlega sin að nota ekki þessa helgi..

Ég og Rachel ákváðum því að skella okkur til LA!!!! fljúgum út á laugardagsmorgun og verðum fram á mánudagskvöld... Fínt að hafa svona góð sambönd að við verðum í frírri gistingu, með "einkabílstjóra" og fleira.. Verður ekki leiðinlegt að eyða einni helgi þar, án körfu og skóla.. 

Styttist svo í að þetta ævintýri hér í TCU klárist.... Finnst það eiginlega ótrúlegt enda líður tíminn svo hratt, stundum OF hratt if you ask me.. haha, en það eru mjög spennandi hlutir sem taka vonandi við eftir season og því er maður bara mjög spenntur fyrir því..

sidenote - fengum nýtt skópar.. ein í liðinu þurfti að fá aðra sérpantaða því stærð 14 womens, eða 12.5 mens, eða semsagt 47 í EU var OF LÍTIÐ!!!!!!! 
varð bara að koma þessu frá mér, enda erum við íslendingar greinilega með "litla" fætur miðað við þetta lið hér!! hah

smá tips á ykkur sem lofuðuð að heimsækja mig áður en ég kláraði.. þið hafið 6 mánuði til stefnu!! dollarinn að detta niður í 110 þannig engar fleiri afsakanir... bara spara smá og kíkja til mín!! hah :)

Jæja, styttist í að mamman komi og ég fari heim, enda er þetta algjörlega passed my bedtime (næstum midnight)

Take Care!!!

» 14 hafa sagt sína skoðun

16.08.2010 06:27:13 / Helena

in Canada

okay, svo ég þurfti að blogga fyrir gofrogs síðuna og til þess að auðvelda mér fyrir copy-a ég það hingað inn líka...
enjoy,,, (myndir eru væntanlegar inná facebook)

Hey Frog Fans!

We are having an awesome time up here in Canada. On Friday night we played University of the Fraser Valley again. One of our goals on this trip is to keep getting better with each game. We learned a lot in our second game against UFV and we will carry that over to our upcoming games.  After the game we packed our stuff and Tony, our lovely bus driver, took us to Whistler where we spent a weekend fullof fun activities.

We started the Saturday by walking through the beautiful town of Whistler. This weekend was a busy one for this popular ski resort town, because one of the biggest mountain bike competition in the world was taking place. There were crowds of people everywhere and many interesting things to experience for us.

 On the agenda that day was to go white river rafting. We all had a great time on the river and some got more of the icy cold glacial water than others. (Coach Davern :) ) The breathtaking scenery along the way made the rafting trip even more memorable.

Sunday we had another adventure scheduled. The team was tricked into thinking we had an “easy” day of zip-lining down the mountains. It was not until up on Cougar Mountain, that we were informed that we had been signed up for Monkide. A 2 hour obstacle course up in the trees awaited us, where the only thing keeping us from falling were two little security lines. Two hours later, and after sweat, screams, and even some tears, we finished the Monkide track. Most of us were very happy to stand two feet on the ground and to have made it safe to the end. Big shout out to Joyce Mittie (Coach Mittie’s mother) who on her 45th anniversary day completed the course like a super hero!

As you all can imagine the team is getting to experience some amazing things together out here in Canada. As we look ahead to this season coming up, I know that this trip will help us, as we prepare for a great season with big goals. We are getting to know each other well, on and off the court and those are things that we will certainly need on the road to another championship season.

Go Frogs! 


» 19 hafa sagt sína skoðun

09.08.2010 04:16:29 / Helena

Almost Canada time...

okayyyy er hérna með tárin í augunum....

útaf því að ég var að reyna að "foam roll" lappirnar á mér en það eru svo margir hnútar og ég er með svo miklar harðsperrur að þetta er alltof vont! haha

búnar að æfa um þrisvar á dag, lyftingar og síðan 2 körfuboltaæfingar.. stundum brjótum við þetta upp og förum í sund og gerum æfingar ofaní lauginni og svo höfum við film sessions og solis líka..

en ekki hægt að kvarta samt! erum á leið til Canada á miðvikudagsmorgun og þar spilum við 7 leiki á 9 dögum þannig að við verðum að vera tilbúnar í það.. (gerum líka fullt skemmtilegt eins og white river rafting, the lake og shopping svona) 
planið þessa vikuna er 7.30 á morgun lyftingar plús æfing, svo 4-6 önnur æfing og kvöldmatur með fastbreak klúbbnum okkar (booster-arnir) og svo ice-tub (sem er búin að vera náinn vinur okkar seinustu daga) 
á þriðjudaginn er síðan BARA ein æfing frá 9-12 og við fáum daginn til að pakka, og leggjum af stað til Canada kl 5.30 AM á mið..

Annars er lífið hérna alveg æðislegt! Verður skrýtið að þurfa að flytja héðan um 9 mánuði from now.. en vonandi betri hlutir taka við!

Við Rachel, Micah og Emily erum bara annars að lifa lífinu eins og drottningar.. haha, erum að njóta þess í botn að vera í nýju geggjuðu íbúðinni okkar, skreppum í sundið þegar við höfum off til að vinna í taninu og höfum það gaman.. haha:) 

Við komum síðan heim frá Canada 19  ágúst og þá tekur við ennþá meira skemmtilegt fyrir mig, því Maja Ben ætlar að kíkja til mín í heimsókn í um 4 daga.. hún heimtar að ég seti upp plan um hvað við ætlum að gera á hverjum degi þannig að ég er að vinna í því... haha :) það verður rosa gaman..

jæja það er komið bed time, enda ekki nema 8.5 tímar í að við eigum að mæta aftur uppí gym..

Take Care! :)

photo.php.jpg

ég og Rachel skelltum okkur á klúbb í tilefni af afmælinu hennar...

photo.php.jpg

the 4 ya-ya sisters.. haha, Rach -ég-micah-em


» 15 hafa sagt sína skoðun

20.07.2010 15:57:10 / Helena

Summer in Texas!!

Fékk um 2 mánuði á Íslandi og það var alveg æðislegur tími!!
fékk micah vinkonu í heimsókn og ferðaðist smá með family-unni... :)

Núna er ég búin að vera í um 20 daga hérna í US og lífið er bara hreint æðislegt. Kannski aðeins of heitt samt.. haha, en eftir að hafa kvartað yfir kulda á íslandi get ég nú eiginlega ekki kvartað yfir því að það sé of heitt.. 
en maður skellir sér í sund nánast daglega, stundum þegar sólin er uppi, eða seinna um kvöld þegar það er orðið aðeins kaldara úti... Sundlaugin sjálf er samt svipuð og volgur heita pottur enda nær sólin að hita hana upp...

Karfan er á fullu! Við fljúgum til Canada 10 ágúst til að spila 6 leiki á 9 dögum! Við erum því í fullum undirbúningi núna, og júlý hefur verið ansi krefjandi, enda erum við að komast í "game-shape" frekar snemma í ár.. Við fáum síðan 10 körfuboltaæfingar með þjálfurunum okkar, erum búnar að nota 2, 1 verður í kvöld og síðan verðum við á hverjum degi frá 4 ágúst.. 

Virkir dagar hafa verið svoldið uppteknir, work-out, tími (tökum einn áfanga til að fá skólastyrkinn), chill, pick up (spila 5 á 5) 
Helgarnar hafa verið mjög skemmtilegar, fórum til Austin (til fjölskyldu hennar Micah og það var GEGGJAÐ), síðan helgina eftir skrapp ég til Houston til að vinna á móti sem pabbi TK rekur, hitti þar 3 íslenskar dömur, Lovísu, Margréti og Bergþóru eða Becku eins og hún var kölluð hér.. Þær voru í Houston í heilan mánuð til að spila körfu, og stóðu sig vel!

Við erum síðan fluttar inní íbúðina okkar f. þetta árið. Ég, Micah og Rachel fengum okkur Townhome, en það er semsagt íbúð á 3 hæðum, með 2faldan bílskúr! sweet deal og íbúðin er ÆÐISLEG!!! (myndir koma síðar) 

Það er semsagt allt rosa gott að frétta héðan, trúi því varla að SEINASTA árið mitt sem Horned Frog sé hafið! 

spennandi tímar framundan!! *senior year* :)

» 14 hafa sagt sína skoðun

08.04.2010 21:16:08 / Helena

Spring

Nice 2 vikur í frí, en erum mættar aftur inní gym, bæði workouts og svo pick up.. Munum svo horfa mikið á film núna í vor til að læra frá öðrum liðum og finna hluti sem við getum einstaklingslega gert betur, munum einbeita okkur að um 3 hlutum sem hver leikmaður þarf að bæta og einbeita sér að í sumar..

WNBA draftið er núna í gangi.. smá fiðringur sem fer um mann þegar maður sér stelpur sem ég hef spilað við seinustu 3 ár vera að fara inní WNBA. Jene Morris sem var í san diego state fór 11 í draftinu í ár, flottur representari fyrir mountain west.

Veðrið er að verða betri með hverjum deginum og það er voðalega nice að leggjast út við bakka með bók og chilla þar.. :)

ég á bókað flug fyrir 10 maí, þannig að það styttist í þetta, hlakkar svo til :)
svo kemur Micah í heimsókn vikuna eftir það! hún er að deyja úr spenningi og ég vona að við getum gert sem mestu hluti þegar hún kemur, og vonandi verður ekki rigning og rok allan tímann! haha :)

4 ritgerðir due á næstu 2 vikum.. ekkert of spennandi.. ein af þeim er research paper og þarf að vera amk 15 bls.. svo eru 3 aðrar sem þurfa að vera amk 5 bls.. og ég sem hata ritgerðir.. en oh well, það styttist í að skólinn klárist, eftir þetta þá á ég bara 4 áfanga eftir að graduation! MJÖG spennandi!!! :)

erum að fara að spila uppí rec center en við förum þangað til að spila gegn strákum.. ekkert leiðinlegt að vinna þá, því þessir gæjar halda að þeir séu svaka góðir og verða ekkert lítið ósáttir þegar við vinnum þá... haha

svo er ég í soccer liði núna, erum að byrja play-offs í kvöld.. ( er intramural, eða svona innanskóla mót). þetta er co-ed þannig stelpur og strákar eru saman.. gaman að skipta á milli körfu og fótbolta.. :) svo langt síðan ég hef verið að spila fótbolta, maður er ANSI ryðgaður.. en ég skoraði í seinasta leik, og stelpur frá 2 mörk og strákar 1, þannig við fáum að vera framherjar.. hehe :)

TAKE CARE

» 15 hafa sagt sína skoðun

26.03.2010 05:46:50 / Helena

ELSKA ÞETTA LÍF

svo pirrandi, að það er 1 á móti 64 að þú endir seasonið á sigri (ef þú kemst inn í NCAA's) ekki gaman að þurfa að fara inní sumarfrí með tap á bakinu... hvað þá þegar þú tapar eins og við töpuðum... áts, áttum þennan leik en náðum ekki að setann í restina og þær skora með 1 sek eftir.... glatað sárt :/ en ég er gríðarlega stolt af liðinu mínu, við áttum bestu viku af æfingum sem ég hef upplifað og virkilega spiluðum brilliant fyrstu 30 minuturnar en svo var öll lukkan úti... HATA AÐ TAPA!!!

photo.php.jpg

fórum útað borða í tennessee... 


Annars erum við semsagt í 2 vikna fríi.... svo skrýtið að þurfa bara að fara í skólann og ekkert annað... get ekki sagt að það sé slæmt.. :) Maður er samt búin að fara í rec center 2 i vikunni,, haha kann ekki að taka algjört frí....

photo.php.jpg

á æfingu í knoxville..




byrjum síðan að lyfta og munum taka þátt í einhverri research sem er verið að gera, en það er eitthvað um kraft og styrk og fleira.. VO2 minnir mig.... 

Annars er lífið bara rosalega gott!!!! Ég Micah og Rachel fundum íbúð í dag, til þess að flytja inní í sumar og vera þar senior árið okkar... ekkert smá flott! kallast townhome, en það er semsagt á 3 hæðum, á neðstu er tvöfaldur bílskúr og geymsla, svo fer maður beint upp stigan og þar er micuh herbergi (sem kallast study en micah er tilbúin að compromise-a og vera í minnsta herberginu) og hún er með baðherbergi. á þessari hæð er líka eldhúsið, svalirnar, borðstofa og stofa. svo uppá næstu hæð er herbergið mitt og Rachel, og erum við báðar með walk-in closet og okkar eigið baðherbergi með risa tub og sturtu:) very nice! og á þessari hæð er líka þvottahúsið og svo svona skrifborðs-aðstaða.. ef ykkur langar að skoða nánar: http://www.marquisatstonegate.net/home.asp

við fórum svo í humane society í dag (líka í gær) þar sem við ætluðum að ættleiða hvolp sem við sáum í gær og gjörsamlega elskuðum hann.. en þar sem við gerum oft "mistök" og spennum hvor aðra upp, ákváðum við að bíða í 1 dag bara svona hugsa þetta thru.. komum svo tilbaka, en þá var búið að ættleiða REMI....(Rachel,Emily,Micah,Ice=REMI) ...... haha
SORGARDAGUR !!! en við ætlum að taka okkur smá tíma og reyna að finna annan,,, en þessi var bara svo æðislegur að við vorum mjög fúlar... (hefðum átt að fá hann í gær, en héldum að við værum rosalega smart að taka smá tíma og hugsa um þetta) oh well......... hann var bara svo sætur..

Annars er maður bara að reyna að vinna allt upp í skólanum, það gengur nokkuð vel.. Svo erfitt svona þegar seasonið klárast og manni langar eila bara að gera eitthvað allt annað en fara í tíma, að vera að vinna upp nánast 2 vikur af misstum tímum og þreytuköstum.... en þetta er bara part of it, þannig maður lætur sig hafa það...... var einmitt að horfa á 80 min heimildarmynd sem heitir: DIRT THE MOVIE
já hún heitir, mold - bíómyndin! hahaha, og semsagt þetta er fyrir Environmental science tímann minn og þetta voru literally 80 mínútur af fólki sem er virkilega passionate um drullu og jörðina.. 

Micah kemur síðan með mér til landsins 11 maí!! hana hlakkar þvílíkt til, langar mest í bláa lónið, borða lambakjöt og að djamma á íslandi! haha.. Það gæti svo verið að TK komi líka, ef til vill Emily.. en það skýrist fljótlega...

Búið að vera ansi interesting og skemmtileg vika... oft sem hlutir sem þú heldur að séu bara þvílíkt random enda á að vera súper skemmtilegir... 
Er algjörlega að njóta lífsins, á bestu vini í heimi og það er aldrei "dull moment"

photo.php.jpg

á buffalo wild wings



Highlight of this week(so far) :
 * Tala við Pálínu og Klöru Kristínu á skype í 2 klst!! :) fékk að sjá litlu frænkuna mína í fyrsta skipti síðan á jólunum (myndir teljast ekki með)  

* Fara í keilu með Rach, Tk, Em, Micuh og rústa þeim! haha, og allir í þessu bowling alley þekktu okkur frá körfunni og þótti ótrúlega merkilegir taktarnir sem við sýndum (það var svona league mót í gangi)

* Finna ýkt töff íbúð, hlakka súper mikið til að flytja inn! :) ( 14 julý)

* Lenda inná cowboy bar með öllum mögulegum týpum af fólki

* Velja hvernig Championship hringurinn verður!!!!!

* Hlaupa í 20 mínútur án þess að stoppa (var alveg búin á því eftir á,,, haha)

* Fann hina fullkomnu hlaupaskó.. ekki nema 25 dollarar, því kallinn á academy elskar mig, segir að ég sé hans besti customer :)  

* Áttaði mig á (minnti mig aftur á)  hversu heppin ég er! er búin að kynnast æðislegum krökkum hér, sem ég mun pottþétt eiga ævi-langt friendship með.. 

photo.php.jpg

:)


I LOVE MY LIFE!!!!!!!!!!!!!!!!

schedule-ið fyrir haustönnina (seinasta önnin áður en ég fæ BS gráðuna) 3 tímar, allir á þri og fi, þannig ég verð með 4 daga helgar og miðvikudaga frí.... NICE


jæja, time for bed...

oh, eitt annað, ef þið hafið möguleika á að horfa á eitthvað af leikjunum í March Madness, do it!! það er ekkert betra en að sjá þessa gæja og gellur gefa 100 % í hvern einasta bolta, og fullt af upsets og framlengingum.. 

Take care

2223254.jpg







» 14 hafa sagt sína skoðun

13.03.2010 05:56:46 / Helena

Reg. season champs!

been a while...

erum staddar í Vegas, þar sem conference tourney fer fram. Við töpuðum í dag gegn Utah sem þýðir að við verðum bara að halda í vonina um að komast inní NCAA. Allir specialist-arnir segja að við séum öruggar inn, en við erum eitt af þessum bubble liðum sem vonandi náðu að sanna sig fyrr á árinu.. Sjáum til á mánudaginn í selection monday..
ef við íslendingar værum jafn trúuð og kanarnir myndi ég segja pray for us.. en allavega þeir sem biðja megið alveg henda því inn,,, langar ekki að lenda í WNIT (sem er svona post-season tournament, næst best á eftir NCAA)

eina jákvæða er að ég er ekki nefbrotinn! þegar um 10 sek voru eftir af leiknum í dag þá tók ég olnboga í nefið og ég heyrði það braka og svo byrjaði að blæða úr báðum nösum.. leit ekki vel út, og það blæddi í um 15 min þangað til Val (sjúkró) setti eitthvað sem líktist kanelsykri uppí nefholurnar og það stoppaði þetta. er bara mjög aum í nebbanum, og Val segir að brjóskið hafi marist við þetta..

en það þýðir ekkert að væla það, enda er coach ekki ánægður með okkur og um leið og við komum til Texas á morgun förum við beint á æfingu..... þetta verða erfiðir þrír dagar, en við höfum komist í gegnum hell áður, við getum gert það aftur...

Annars átti ég afmæli á fimmtudaginn, hef ekki beint fengið að njót afmælis seinustu 3 ár þar sem við erum alltaf í miðri keppni, en ég fékk 2 skemmtilegar gjafir, tk gaf mér coach veski og Micah gaf mér noise canceling headphones.. Emily's gjöf varð óvart eftir heima þannig ég fæ hana þegar við komum tilbaka:) so gaman að fá gjafir! haha :) þó maður sé orðin 22ára.... ;)
fékk íslenskan pakka í vikunni, papriku snakk, nammi, hangikjöt og flatkökur (sem bíða eftir mér í ískápnum heima!! :) )  verst að ég og tk gáfum nammi af okkur fram til páska (það er reyndar catholics sem gera það, að gefa upp eitthvað sem þeir eru háðir fyir Lent, en við ákváðum að gefa upp nammi)
þannig íslenska nammið verður bara að bíða fram að páskum.. hvenær eru annars páskarnir??

Smá shout-out til Hauk Páls, með að fá skólastyrk hjá Maryland!! það er ekkert smá afrek!! 

jæja, ætla að fara að seta ice á þetta nef, enda vil ég ekki að það byrji að bólgna meira upp.... haha

Take care

» 15 hafa sagt sína skoðun

01.03.2010 02:57:43 / Helena

Mt West CHAMPS!!!!!!

Jæja, þá eru bara 2 leikir í viðbót. Við erum búnar að tryggja okkur allavega share af Mountain West Champions. Þurfum að vinna 1 af 2 leikjum sem eftir eru til að vinna þetta einar, en að sjálfsögðu ætlum við okkur að taka báða..

Á þriðjudaginn verður risa leikur hér heima á móti New Mexico. Margt er undir, það er senior night, við getum klárað tímabilið ósigraðar á heimavelli, tryggt okkur Mt West titilinn, og stækkað heimaleikjametið í 22..

Keypti kampavínsflösku enda þarf að kenna þessum könum að fagna! haha ;) Verst að það eru engir bikarar, eða þeir eru allavega ekki í sama formi og við erum með heima..

Það er loksins að hlýna og svona hér, þannig stuttbuxur og peysa er orðið nóg.. :) elska það.. 

Ekki mikið nýtt að frétta, allt nottla bara súper busy með körfuna..

Styttist í afmælið mitt, hélt kannski að maður yrði minna spenntur svona þegar maður eldist, ég er greinilega ekki ennþá komin á það stig... haha, tel niður dagana..... whooopsie!!! ;) oh well! 22 ára! vá, hvað þetta líður, finnst ekkert rosa langt síðan í ég var 17...

Take care



» 12 hafa sagt sína skoðun

19.02.2010 05:04:41 / Helena

Feb 18

Jæja, töpuðum 3 leiknum í conference, vorum bara hræðilegar ekkert hægt að segja annað..
unnum Wyoming seinasta laugardag þar sem við spiluðum frekar vel, skrýtið hvernig eitthvað allt annað lið mætti til San Diego...
Seinasta helgi var annars alveg gríðarlega skemmtileg! :)
Á laugardaginn spiluðum við semsagt gegn Wyoming og það voru Íslendingar í húsinu..:) Hannes formaður kkí kom á leikinn en hann var í Dallas útaf All-Star helginni, það var gaman að sjá hann og spjalla eftir leikinn.
Svo kom Stefán Þór, Sonia kona hans, og börnin þeirra Alexia og Sigurjón en þau búa í Austin og Stefán vann einu sinni með pabba. Ég fór ásamt þeim og Theodoru og Róberti(íslenskur professor við UTA) á Panera bread þar sem við sátum og spjölluðum um allt og ekkert. Rosa gaman!

Svo á sunnudaginn var Valentines Day, sumir kalla S.A.D (single appreciation day) en TK var svo yndisleg að bjóða mér á "date" haha, gaman að því.. vorum voða fínar á því, fórum á steak hús (ég fékk mér reyndar kjúkling, haha kemur á óvart) og hún fékk sér líka þessa fínu steik.. Svo fengum við okkur köku í eftirmat en þær voru svo stórar að heil fjölskylda hefði verið happy með þetta..

Annars er skólinn aðeins að sparka í ra$$inn á manni.... ALLTOF mikið að gera, ritgerðir og próf í hverri viku, er alveg meira en tilbúinn að klára skóla og geta bara farið í vinnu og svo gert það sem maður vill eftir það.. en er búin að vera að fá góðar einkunnir so far þannig ég verð bara að halda áfram að púsla þessu við körfuna, svo erfitt að finna tíma en það þýðir ekkert að kvarta...

Fengum 2 frídaga frá körfu, bara lyftingar.. Svo er æfing á morgun en við spilum ekki fyrr en næsta þriðjudag þar sem þetta var "by" vikan okkar..
Bara 4 leikir eftir af regular season. Við erum ennþá í fyrsta sæti og við ætlum okkur að enda þar!! Það eru því bara 5 öruggir leikir, en eftir þá þá fer þetta allt saman eftir því hvernig okkur gengur, verðum alltaf að vinna til að komast áfram.. svo er það post-season og þá er sp með NCAA, erum nú nokkuð öruggar inn en alltaf best að vinna conference tourney til að vera pottþétt..

próf á morgun í environmental science, ætla að læra smá fyir svefninn..

Take care

» 14 hafa sagt sína skoðun

11.02.2010 12:22:37 / Helena

4 framlengingar!!!!

vá 

ekki margt annað hægt að segja
þvílíkur baráttu leikur
og við svo sætar í bleiku

vorum í loftinu í 30 min áður en við þurftum að snúa við útaf einhverju ljósi.. Lentum svo í Salt lake og vorum sendar á hótel í 2 tíma, og erum núna á flugvellinum að reyna að fljúga commercial tilbaka..

SNOWDAY í texas... fengum sms í morgun "TCU ALERT" en það er víst að snjóa í Fort Worth þannig að skólinn er lokaður í dag! ímynda mér örlítin snjó á jörðinni og auðvitað verður að loka skólanum haha..:) en það voru mjög góðar fréttir f okkur þar sem við fáum frí frá æfingu og erum nottla ekki búin að fá að sofa neitt og klukkan er 6 um morgun..

Boarding time..

Take care

» 12 hafa sagt sína skoðun

05.02.2010 23:59:32 / Helena

5 Februar

já það er sko komin febrúar! ótrúlegt hvað þessi tími líður hratt alltaf....

Góð vika á enda, og leikur á morgun gegn frekar aumu liði Air Force. Þær hafa einungis unnið 3 leiki allt árið, og 0 í conference..
Við tókum BYU með 24 stigum á miðvikudaginn, og erum jafnar í fyrsta sæti með San Diego, en unnum þær með 20+ þannig við erum fyrstar. Pirrandi að hugsa til þess að við höfum unnið 2 eftstu liðin(við efstar) með 20+ en síðan tapað fyrir miðjuliðum New Mexico og Wyoming. En við lögum það í seinni umferðinni..

Skólinn er alveg á fullu og næstu vikur verða ennþá erfiðari, en það er bara eitthvað sem maður verður að takast á við líka.

Man ekki hvort ég sagði frá "Cribs" seinast, en allavega er þátturinn tilbúinn! þjálfararnir fengu að sjá hann áðan, og ætla að senda okkur hann í kvöld.. þetta verður eitthvað skrautlegt! haha, en þetta kemur síðan inná TCU Wbasketball Fan síðuna, og ég skelli kannski inn link hingað ef mér finnst þetta ekki of vandræðalegt.. hehe

Svo næstu helgi er PINK OUT.. og í ár fáum við ALVEG bleika búninga!! við erum svo spenntar að við vorum öskrandi af gleði... ætlum síðan að vinna Wyoming í þeim leik og fá að eiga búningana!! haha, :) Verðum algjörar pæjur í all pink búningum, og svo með fjólublátt í !! (haha, erum svo girly! ;)  )

Er að fara útað borða á Olive Garden, með TK Micah Emily Og Rachel...
þannig,

Take Care! :)

» 15 hafa sagt sína skoðun

25.01.2010 00:49:20 / Helena

24 Jan

Jæja seasonið gengur vel, erum 14-4 og 4-1 í conference sem setur okkur í efsta sætið með BYU.

Deildin er þvílíkt jöfn í ár og allir að tapa f. öllum.. t.d. við töpum fyrir Wyoming, Utah f. UNLV og SDSU f BYU

En þegar við spilum okkar bolta þá á enginn séns í okkur.. t,d, í gær í Vegas þá spiluðum við gegn UNLV.. við byrjuðum vel og vorum 10 stigum yfir en þá kom smá hik á okkur og við hættum að spila af fullum krafti og vorum undir 8 stigum í hálfleik.. en við vissum að við gætum lagað þetta, og vorum sko ekki sáttar með spilamennskuna okkar, þannig við byrjuðum seinni hálfleikinn á að skora 21 stig í röð og pressann og trap-vörnin þeirra átti ekki séns í okkar ákveðna leik.. Við enduðum á að sigra með 20 stigum..
Næsti leikur er heima á móti Colorado State (þær hafa líka verið að vinna suma sterka leiki og tapa léttum) og svo á laugardaginn spilum við í New Mexico, eða The Pit sem er einn erfiðasti staðurinn til að spila á, held ég um 8500 manns að meðaltali, í fyrra var fullt hús af 10.000 manns á leiknum og ég man að við gátum ekki einu sinni kallað kerfin, svo mikill var hávaðinn..

Skólinn er að ganga fínt .. var að klára að lesa bók um Anne Hutchinson og þarf að skrifa ritgerð um hana f. fimmtudaginn... Hún var uppi í kringum 1600-1680 og það er fyndið að sjá hversu mörg börn allir áttu! haha, og hún eignaðist 15 börn, og hennar börn eignuðust ávið mörg börn.. núna ef fólk á meira en 5 börn er það mjög óvenjulegt!  og já, hollendingar keyptu eyjuna Manhattan f. 24 dollara! haha
(er semsagt að taka History of Women in the US, fyrir my history minor) 

Á fimmtudaginn kemur "camera crew" hingað heim og þau ætla að gera "MTV cribs" fyrir TCU síðuna.. það verður fyndið að prófa svolis, kannski ekki flottasta íbúðin sem við eigum.. haha, en eigum allar risa comfy rúm sem okkur skiptir mestu máli um! :) 

Tapaði 3 dollurum í Casino-inu í Vegas... haha, ekkert verið að veðja big bucks! haha, sátum þarna 4 í slot machines í góðan klukkutíma.. náði að komast alveg uppí 11 dollara sko! haha, áður en ég tapaði því svo aftur....

Er að horfa á Vikings-Saints í football.. Get ekki sagt að mér finnist það leiðinlegt að football sé að klárast.... þá fer nefnilega ALLT að snúast um körfuna! elska þegar ESPN og allar þessar stöðvar sýna endalaust körfu.. ekkert football dót...

Þangað til næst,
Take care

» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 198303
myndir..